Það að stofna frumkvöðlafyrirtæki og ná árangri er nær alltaf erfiðara og flóknara heldur en fólk gerir sér grein fyrir. Flestir virðast halda að þetta sé eitthvað sem gerist á einhverjum mánuðum en staðreyndin er sú að það að byggja upp stöðugt fyrirtæki tekur yfirleitt að lágmarki 2-3 ár af ævi þinni.
Ferlinum við að búa til stöðugt fyrirtæki má skipta upp í þessi 4 þrep.
1. Þrep: Eldmóðurinn
Þegar maður fær fyrst hugmyndina er allt svo skemmtilegt og spennandi, það virðast ekki vera nein takmörk og það er nokkuð augljóst að þessi hugmynd eigi eftir að verða milljarða króna virði í náinni framtíð. Á þessu tímabili fara sumir frumkvöðlar inn í “incubators” eða frumkvöðlasetur og vinna myrkranna á milli við hugmyndina. Þetta er tímabilið sem lætur frumkvöðalumhverfið líta út fyrir að vera töff og skemmtilegt. Þetta tímabil varir yfirleitt bara í nokkrar vikur eða mánuði.
2. Þrep: Núðlusúputímabilð
Hérna byrjar alvaran, þú ert með hugmynd sem þú ert búinn að pússa aðeins til en hún er ennþá ekki farin að skila neinum tekjum. Á þessum punkti þarftu að taka ákvörðunina hvort þú sért raunverulega tilbúinn að veðja á hugmyndina þína því næstu mánuði þarftu að vinna í fullu starfi að hugmynd sem er ekki að gefa þér neinar tekjur. Ertu tilbúin að vinna launalaust, fara út fyrir þægindasvæðið og taka áhættu? Fæstir eru tilbúnir að taka skrefið inn í þetta tímabil og af þeim sem taka skrefið gefast margir upp á meðan á þessu tímabili stendur. Þetta tímabil varir yfirleitt í 12-24 mánuði.
3. Þrep: Ábyrgðin
Á þessu tímabili er fyrirtækið farið að vaxa og þú farinn að ráða inn starfsmenn, nú þarftu allt í einu að fara taka á þig miklu meiri ábyrgð heldur en þú hefur gert fram að þessu. Vinnutímar þínir eru langir þar sem verkefnalistinn er langur og þú hefur aldrei efni á því að ráða alla þá starfsmenn sem þarf til að sjá til þess að allt gangi vel, þú verður að sjá til þess að allt rúlli vel í fyrirtækinu og vinna frameftir ef eitthvað þarf að klárast. Þú þarft að sjá til þess að þú eigir alltaf nægar tekjur til að borga starfsmönnum þínum, þú þarft að halda utan um þá og funda með þeim reglulega til að vera viss um að þeir séu að skila sinni vinnu. Ef tekjurnar lækka eða eitthvað óvænt kemur upp á gætirðu þurft að hagræða í fyrirtækinu og reka einhvern af starfsmönnum þínum. Í þessu þrepi eru þetta allt í einu hætt að vera leikur og alvaran tekur við.
4. Þrep: Heimsyfirráð eða stöðnun.
Í fjórða og síðasta þrepinu kemur raunverulega í ljós hvers megnugt fyrirtækið er, nú þarftu að taka ákvörðun um hvort þú ætlir að staðna í stað eða taka áhættuna og reyna vaxa og verða stórt alþjóðlegt fyrirtæki. Ef þú þorir ekki að taka áhættuna á því að vaxa mun fyrirtækið líklega halda áfram að lifa en starfið þitt og fyrirtækið mun breytast í rútinu sem mun aldrei gera neina stórvægilega hluti en mun þó engu að síður halda áfram að bjóða starfmönnum þínum upp á störf og skapa tekjur fyrir þig. Ef þú ákveður að taka áhættuna og veðja á að fyrirtækið þitt getið vaxið með veldishraða þá áttu hættu á því að drepa fyrirtækið, en aftur á móti ef sú áætlun gengur upp eru engar takmarkanir á því hvað fyrirtæki þitt mun geta vaxið og þú munt annað hvort geta rekið stórt alþjóðlegt fyrirtæki eða selt það og exitað með nóg af pening í bankanum.