Á síðari árum hef ég áttað mig á hversu miklu máli andlega hliðin skiptir í rekstri fyrirtækis. Það að stofna fyrirtæki er heldur auðvelt, þú fyllir bara út nokkra pappíra og greiðir smá pening en það að láta þetta sama fyrirtæki skila þér hagnaði og launum er mun erfiðari verkefni. Þótt það sé mismunandi á milli viðskiptahugmynda þá tala ég yfirleitt um að það taki 2-3 ár að sanna verðgildi hugmyndarinnar og búa til stöðugt fyrirtæki. Þessi fyrstu ár geta verið svakalega erfið þar sem þú ert bókstaflega að leggja allan tíma þinn, orku og pening í það að byggja það upp. Það skiptir því miklu máli að þú vitir afhverju þú ert að stofna fyrirtæki og hafir það að leiðarljósi á meðan þú ferð í gegnum erfiðustu tímabilin. Þess vegna hef ég sett saman eftirfarandi 7 spurningar sem ég mæli með að þú spyrjir þig áður en þú ferð út í þennan feril, ef þú ert með þær á hreinu þá muntu betur geta veitt sjálfum þér innblástur á erfiðu tímunum.
1. Afhverju ertu að stofna fyrirtæki?
Það geta verið ótal margar ástæður fyrir því að fólk fer út í eigin rekstur og engin ein ástæða er réttari en önnur. Það er þó mjög mikilvægt að þú vitir hver ástæðan ÞÍN er og sért sáttur með hana. Ástæður fyrir að vilja fara út í eigin rekstur geta t.d. fjárhagslegt öryggi, þörf til að breyta heiminum, ríkidæmi, skapa lausnir, hjálpa öðrum eða eitthvað allt annað. Það gæti jafnvel reynst þér vel að skrifa niður ástæðuna á blað sem þú gætir geymt í veskinu þínu og litið á þegar þú ert orðin útkeyrður og hættur að muna afhverju þú byrjaðir á þessu.
2. Viltu búa til lífsstílsfyrirtæki eða vaxtafyrirtæki?
Það er ekki langt síðan ég kynntist fyrst orðinu lífsstílsfyrirtæki (e. lifestyle business) en það er í raun fyrirtæki sem búið er til af stofnendanum til að hjálpa honum að lifa því lífi sem hann kýs að lifa. Dæmi um lífsstílsfyrirtæki getur t.d. verið lítil vefsíða sem skilar eigendanum nægum tekjum til að hann geti ferðast um heiminn á meðan hann vinnur í gegnum tölvuna sína. Ef draumur eigendans er að ferðast þá er þetta hið fullkomna fyrirtæki til að hjálpa honum að lifa drauma lífsstílnum sínum. En það er þó mjög takmarkað hversu mikið slík fyrirtæki geta vaxið svo þú þarft að ákveða hvort þú sért bara í þessu til að lífa þeim lífsstíl sem þú vilt lifa eða útaf því að þú vilt búa til fyrirtæki sem getur vaxið og dafnað.
3. Hversu stórt viltu að það verði?
Það er stundum smá þrýstingur frá bæði startup heiminum og viðskiptaheiminum til þess að reyna ýta öllum út í það að búa til stór og stæðileg fyrirtæki með tugi eða hundruði manna í vinnu en er það virkilega eitthvað sem þú vilt. Það eru kostir og gallar við báðar leiðir og hugsanlega mun spurning 1 hafa mikil áhrif á hvora leiðina þú vilt fara.
4. Er fyrirtæki þitt að fara selja vöru eða þjónustu?
Hvað þú ert að selja getur haft mikil áhrif á seljanleika fyrirtækisins í framtíðinni t.d. ef þú ert einungis að selja tíma þinn þá ertu að selja þjónustu og þá er takmarkaður skalanleiki þar sem eina sem þú getur gert til að auka tekjur fyrirtækisins er að auka tímakaupið þitt og það er yfirleitt alltaf eitthvað þak á því hversu hátt tímakaup er hægt að rukka. Aftur á móti ef þú ert með vöru sem getur selst í fjölda eintaka óháð því hversu marga klukkustundir þú vinnur þá ertu komin með skalanlegt fyrirtæki og fyrirtæki sem auðvelt verður að selja án þess að þú þurfir að fylgja með í kaupunum.
5. Hvernig ætlarðu að fjármagna það?
Þessi spurning snýst í raun um hvort þú ætlir að byggja upp fyrirtækið með eigin pening og vinnuframlagi eða hvort þú ætlir að leita að utanaðkomandi fjármagni sem yfirleitt myndi þýða að fá inn fjárfesta. Ef þú leitar þér utanaðkomandi fjármagns getur það bæði þýtt það að þú getir fyrr byrjað að borga þér laun og að fyrirtækið geti vaxið hraðar. Á móti kemur þó að þú munt ekki eiga fyrirtækið einn og þarft að vinna með fjárfestum þínum og vera tilbúin að taka við ráðum og gangrýni frá þeim. Hvernig fyrirtækið mun ganga mun hafa áhrif á hag fjárfestanna og því skiljanlegt að þeir vilji að einhverju leiti vera virkir í ákvörðunartöku. Aftur á móti ef þú fjármagnar fyrirtækið sjálfur með vinnu og tíma, oft kallað að “bootstrappa”, þá munt þú hafa 100% vald yfir fyrirtækinu og get ákveðið hvernig það þróast.
6. Hversu lengi viltu reka það?
Ert þú frumkvöðull sem hefur einungis gaman af því að láta hugmyndir verða að veruleika og leiðist daglegur rekstur fyrirtækja eða ert þú til í að reka fyrirtækið sem þú byggir upp næstu 20 árin? Til þess að geta svarað þessari spurningu þarftu að þekkja styrkleika þína og veikleika og vita hverskonar frumkvöðull þú ert. En og aftur er ekkert rétt svar, þú getur rekið fyrirtækið í 1 ár eða 100 ár, það fer bara eftir persónuleikanum þínum og markmiðum í lífinu.
7. Viltu vinna með teymi?
Viltu fara í það mikla verkefni að stofna og reka fyrirtæki einn þ.e.a.s. verða eini stofnandinn, eða viltu fá fólk til liðs við þig og deila með þeim fyrirtækinu og öllu því góða og slæma sem fylgir því? Báðar leiðir eru erfiðar, ef þú ferð einn í þetta verkefni þá þarftu að takast á við allar hindranir sem koma upp einn þinns liðs og vera með mjög breytt bak. Aftur á móti ef þú færð aðra með þér þá deilist ábyrgðin og auðveldara getur verið að takast á við erfiðleika sem kunna að koma upp. Teymi eiga það þó til að vera stundum ósammála um hin ýmsu atriði og ég veit um afar fá dæmi um stofnenda teymi sem hafa ekki á einhverjum tímapunkti hnakkrifist og næstum því lagt fyrirtækið niður vegna þess þau gætu ekki komist að samkomulagi.
Það eru kostir og gallar við allar þessar spurningar en það mikilvægasta við þetta allt er að þú þekkjir sjálfan þig og vitir hvað þú vilt fá út úr lífinu. Fyrirtækjarekstur er að mínu mati tækifæri til að láta drauma sína verða að veruleika frekar en nokkuð annað og því betur sem þú getur skilgreint drauma þína og hvernig þú viljir nálgast þá, því meiri líkur eru á að þú munir ná árangri.