Fyrir mánuði síðan ákvað ég að reyna loksins að komast að því hvort það væri í alvörunni hægt að skipta um nafn á facebook síðu. Á þeim tímapunkti hét facebook síða fyrirtækis míns Búngaló með Ú-i og Ó-i en vegna þess að ég var að fara leggja út í mun meiri markaðssetningu erlendis hafði ég tekið þá ákvörðun að notast ekki við íslensku stafina þegar ég væri að markaðssetja erlendis. Ég þurfti því að breyta nafn facebook síðunnar úr “Búngaló” í “Bungalo”, kannski ekki alveg stærsta breyting í heimi en engu að síður mjög mikilvæg breyting fyrir alþjóðlega markaðssetningu. Ég var búinn að heyra mjög margar mismunandi sögur um hvort þetta væri yfir höfuð hægt og samkvæmt upplýsingum hjá facebook var bannað að breyta um nafn eftir að síðurnar fengu meira en nokkur hundruð like. Það sem ég las mér til um á netinu voru einhverjar mjög flóknar leiðir til að skipa um nafn sem snérust um það að stofna nýja vefsíðu og svo samtvinna einhvern veginn gömlu og nýju vefsíðuna svo að nýja nafnið héldist og gömlu notendurnir en ég hvorki skildi það fullkomnlega né fannst það nógu örugg leið til að taka áhættuna að missa mína 15 þúsund fylgjendur. Ég spurði alla markaðssérfræðingana á grúppunni Markaðsnördar en fékk ekkert skýrt svar þar svo ég ákvað bara að demba mér út í það að finna lausn á þessu og það vildi bara svo til að það var miklu auðveldara en ég hélt. Í framhaldi af því að ég fann út úr því fékk ég svo mörg skilaboð á facebook frá fólki sem var að biðja mig um að útskýra hvernig ég gerði það að ég ákvað að skrifa bara bloggfærslu um það.
Eins og ég var búinn að fikta lengi áður en ég fattaði þetta þá var þetta afar einfalt, þú ferð upp í hægra hornið á facebook og smellir þar á stjörnuna og velur svo “manage adverts”. Þar ferðu svo inn í valmyndina fyrir auglýsingasvæðið, á vinstri hönd á skjánum eru nokkrar valmöguleikar og einn þeirra er “email support”, þú smellir á það og þar opnast upp form þar sem þú útskýrir hvað þú vilt gera og sendir á facebook. Í framhaldi af því færðu svo svar frá raunverulegri persónu hjá Facebook (mjög sjaldgjæft) sem ætti að geta hjálpað þér. Þetta er nú bara ekki flóknara en svo.
En bíddu… jú þetta gæti verið örlítið flóknara!
Það liðu einungis nokkrir dagar hjá mér áður en þetta var allt gengið í gegn en svo fór fólk að hafa samband við mig og ég var að reyna aðstoða það í gegnum það sama og þá komst ég að því að “email support” takkinn var ekkert að birtast hjá öllum. Eina ástæðan sem ég gat fundið fyrir því var sú að hann birtist einungis hjá þeim aðilum sem hafa eytt miklum peninga í auglýsingar hjá Facebook, í það minnsta hef ég eytt sæmilega miklum pening hjá þeim og þetta birtist hjá mér en aðrir sem höfðu eytt minna sáu engan takka. Ég þori ekkert að fullyrða um það en ég get vel ímyndað mér að Facebook eyði einungis tíma í þá aðila sem eru tilbúnir að eyða pening í þá á móti. Ég passaði mig einnig á því að útskýra í skilaboðunum sem ég sendi á þá að ég væri að biðja þá um að breyta nafninu á síðunni svo ég gæti nú farið að markaðssetja þetta betur alþjóðlega og þar af leiðandi eytt meiri pening í auglýsingar hjá Facebook.
Facebook er þó þekkt fyrir að breyta öllu hjá sér reglulega og núna þegar einungis eru liðnar einhverjar 3 vikur frá því að ég breytti nafninu sé ég að þetta er búið að breytast aðeins frá því ég fór inn á þetta fyrst. Formið sem birtist um leið og ég ýti á “email support” er með öðru sniði en það var og ég þarf fyrst að fara í gegnum einhvern tjékklista núna áður en ég get farið að skrifa skilaboð til Facebook.
Það virðist því ekki alltaf vera auðvelt að breyta nafni á Facebook síðu en ég vona engu að síður að þessi bloggfærsla hjálpi ykkur að einhverju leiti og gefi ykkur í það minnsta dæmi um hvernig þetta gekk upp hjá mér. Ef þið stefnið að því að breyta nafninu á ykkar facebook síðu þá óska ég ykkur góðs gengis og vona að það gangi jafn vel hjá ykkur og það gerði hjá mér.