Ég ætla að koma með tilgátu um afhverju fyrirtækið þitt mun ekki ganga upp.
- Það er ekki útaf því að varan þín er ekki nógu falleg eða útaf því að þú ert ekki með nógu flotta skrifstofu.
- Það er ekki útaf því að þú hefur litla reynslu af þessum markaði eða útaf því að ríkið vill ekki gefa þér styrk.
- Það er ekki útaf því að þú ert á undan þinni samtíð eða útaf því þú ert ekki ennþá komin með nafnspjöld.
- Það er ekki útaf skort á menntun eða skort á tækifærum.
Nei það er líklega ekkert af þessu sem mun á endanum drepa fyrirtæki þitt…. en það sem ég tel að muni verða því að bana er sú einfalda staðreynd að þú ert ekki að ná að breyta vöru þinni í tekjur!
Sem frumkvöðull hefur þú líklega mikinn áhuga á að byggja upp frábæra vöru/þjónustu sem allir eiga eftir að vilja eiga/nota og jafnvel eitthvað sem gæti breytt heiminum. Slík löngun er oftar en ekki skilyrði fyrir því að þú hafir þolinmæðina og þrautseigjuna til að fylgja hugmynd þinni inn í raunveruleikann enda er það afar erfitt og tímafrekt verkefni. En þegar svo mikil áhersla er lögð á að búa til frábæra og óviðjafnanlega vöru þá eiga aðrir hlutir til með að gleymast og öll áhersla teymisins fer í það að gera vöruna sífellt betri í staðinn fyrir að koma henni til notendans í skiptum fyrir tekjur.
Af þeim hundruði startup fyrirtækja sem ég hef hitt og rætt við bæði hér heima og erlendis er eitt atriði sem nær alltaf aðgreinir þau fyrirtæki sem hafa náð árangri frá þeim sem hafa það ekki og það er hæfileikinn að breyta vörunni í tekjur. Það segir sig í raun sjálft að ef þú ert með fyrirtæki sem er ekki að skila nægum tekjum til að standa undir kostnaði þá mun það á endanum fara á hausinn.
Ég hef því sjálfur byrjað að taka upp á því ráði að þegar ég er að vinna í því að skipuleggja mig og fyrirtæki mitt þá byrja ég með tómt blað, skrifa “hér er ég” upp í vinstra hornið og svo teikna ég dollaramerki niðrí hægra hornið og þess á milli skrifa ég allt það sem ég þarf að gera. Þegar það er komið reyni ég að draga sem beinasta línu frá núverandi stað að tekjunum. Ég dreg einungis þau atriði inn í línuna sem koma mér nær tekjunum og reyni að sleppa öllum hinum ef ég get. Síðar meir þegar ég er kominn með tekjurnar get ég leyft mér að vinna í þeim atriðum sem ekki voru á tekjulínunni.
Það er freistandi að vinna bara í því sem þú ert bestur, hvort sem það er þróunarvinna, forritun, markaðssetning eða eitthvað annað en ef þú vilt tryggja það að fyrirtæki þitt nái árangri einbeittu þér þá alltaf að því að reyna skapa nægjar tekjur fyrir fyrirtækið.