Öll höfum við fengið snilldarlega hugmynd á einhverjum tímapunkti í lífi okkar.
En við mannfólkið erum löt í eðli okkar og reynum þess vegna alltaf að finna einhverja afsökun afhverju við ættum ekki að framkvæma.
- „Þetta er alltof mikil áhætta“
- „Það myndi kosta milljónir að gera þetta að veruleika“
- „Ef ég þekkti nú bara rétta fólkið“
- „Það er alltof mikið að gera hjá mér núna“
- „Ég er ekkert hæf(ur) til að stofna og reka fyrirtæki, veit ekkert um viðskipti“
- „Það er örugglega einhver klárari en ég þarna úti sem er að vinna í þessu“
Örugglega væri hægt að telja upp þúsund afsakanir til viðbótar sem fólk notar til að koma sér hjá því að þurfa í alvörunni að leggja á sig vinnuna sem fylgir því að láta hugmyndina verða að veruleika. En staðreyndin er sú að allar þessar afsakanir eru ekkert annað en hræðsla og leti, því að ef við myndum ákveða að fylgja eftir hugmyndinni þá þyrftum við að yfirgefa þægindasvæði okkar og það viljum við nú alls ekki gera.
Það eru þó alltaf örfáir aðilar sem staldra aðeins lengur við og spyrja sjálfa sig “Hvernig get ég látið þessa hugmynd verða að veruleika?”. Það er ekki auðvelt að svara þessari spurningu, sérstaklega ef þið hafið aldrei áður farið í gegnum ferilinn að stofna fyrirtæki en hvernig farið þið þá að?
5 upphafsskref
Áður fyrr hefði ég ráðlagt ykkur að skrifa viðskiptaáætlun um hugmyndina og að mörgu leiti er sú ráðlegging góð þar sem það að skrifa viðskiptaáætlun neyðir ykkur til að hugsa út í öll smáatriðin. En viðskiptaáætlanir geta verið flóknar og mjög tímafrekar og þess vegna hef ég í seinni tíð verið minna hrifin af þeim. Þess í stað myndi ég einfaldlega ráðleggja ykkur að skilgreina ferilinn nánar og þá sérstaklega þessi 5 atriði:
- Skilgreina hugmynd, í hverju felst varan og hvert er hlutverk fyrirtækisins.
- Kostnað við að þróa og framleiða vöruna/þjónustuna. Startkostnaður.
- Rekstrarkostnað, hvað kostar að reka fyrirtækið (laun, skrifstofa, markaðsmál, símar, hýsing o.s.frv.)
- Lagaleg atriði, þurfið þið að sækja um einhver leyfi? Er hægt að fá einkaleyfi á hugmyndina? Hver ber ábyrgð ef eitthvað kemur upp á? Hvernig er bókhaldi og skattamálum háttað?
- Sölu- og markaðsmál, hver er markhópurinn ykkar og hvernig ætlið þið að koma vörunni til hugsanlegra viðskiptavina?
Þetta er á engan hátt tæmandi list og jafnvel þótt svo þið svarið öllum þessum atriðum þá vitið þið ekki allt sem þið þurfið að vita til að ná árangri með hugmynd ykkar. Engu að síður er þetta rosalega góður byrjunarstaður og ef þið getið skilgreint öll þessi atriði fyrir hugmynd ykkar þá eigið þið skilið hrós og klapp á bakið. Passið þó að flýta ykkur ekki of mikið í gegnum þessi atriði og takið frekar meiri tíma til að velta þeim öllum ýtarlega fyrir ykkur.
Góð ráð til að vinna þetta
Á meðan þið eruð að vinna í að svara ofantöldum atriðum þá er ýmislegt sem þið getið gert til að bæta skilning ykkar á hugmyndinni, umhverfinu og möguleikunum. Hérna deili ég með ykkur nokkrum góðum ráðum sem gætu nýst ykkur í þessum ferli.
- Veltið fyrir ykkur hvað nákvæmlega verður hlutverk fyrirtækisins sem þið stofnið? Er aðal áhersla fyrirtækisins á sölumál, þróun, framleiðslu, markaðssetning, forritun eða eitthvað annað?
- Greinið samkeppnisaðila, hverjir eru í beinni samkeppni við ykkur og hverjir eru í óbeinni samkeppni. Hvað ætlið þið að gera öðruvísi en þeir?
- Kynnið ykkur markaðinn sem þið ætlið að fara inn á með því að tala við fólk sem hefur reynslu af honum og lesið allt sem þið mögulega getið um hann.
- Leitið ráða hjá sérfræðingum á hverju sviði. (Lögfræðingar, endurskoðendur, verkfræðingar, forritarar o.s.frv.)
- Setjið saman gott teymi til að vinna með að hugmyndinni, veljið fólk sem er sterkt á öðrum sviðum en þið sjálf og þið treystið.
- Skoðið hvernig önnur sambærileg fyrirtæki hafa náð að koma sér á framfæri til hugsanlegra viðskiptavina, hvar og hvernig hafa þau verið að markaðssetja sig.
- Kynnið ykkur hvernig það er að stofna fyrirtæki, hvaða pappíra þarf að fylla út og hvað mun það kosta ykkur.
Námskeið
Í hverri viku leitar til mín fólk sem er með hugmynd og er að velta fyrir sér hvernig það eigi að framkvæma hana og breyta henni í arðsamt fyrirtæki. Það er ekki auðvelt að svara slíkri spurningu og ég reyni en get því miður ekki gefið mér tíma fyrir alla sem leita til mín. Þess vegna ákvað ég að halda frekar bara námskeið til að aðstoða fólk í þessum hugleiðingum og ég fékk til liðs við mig hana Þórunni Jónsdóttur hjá Fafu. Námskeiðið fer fram 16.júní næstkomandi og ef þið hafið áhuga á að fræðast meira um þennan feril þá mæli ég með að þið kíkjið á námskeiðið hjá okkur. Þið getið lesið meira um það hér: Ég er með hugmynd, hvað nú?