Save
Frumkvöðlar með góðar viðskiptahugmyndir eru oft í þeim sporum að vita ekki hvort óhætt er að tala um hugmyndina við aðra. Hvað ef einhver stelur hugmyndinni og gerir þannig að engu drauma um ríkidæmi og heimsfrægð? Hvað ef þú ert Tesla og einhver óprúttinn Edison liggur við hlustir?
Raunin er samt að yfirleitt er sáralitil áhætta tekin með því að tala um viðskiptahugmynda oft, víða og við marga. Ávinningurinn er alla jafna mun meiri en áhættan.
– Að búa til vöru eða fyrirtæki úr hugmynd er meira en að segja það. Yfirleitt kostar það áralangt strit og miklar persónulegar fórnir að komast í mark og uppskera árangur erfiðisins. Þetta kallar á óbilandi trú á viðskiptahugmyndina, sem er eitthvað sem fólk hefur alla jafna ekki nema það hafi fengið hugmyndina sjálft.
– Með því að tala við aðra færðu endurgjöf á hugmyndina og getur komið auga á vankanta og möguleika sem þér höfðu yfirsést. Betra að fá þessa endurgjöf fyrr en seinna.
– Þú ert líka að þjálfa söluræðuna með hverju samtali, og ert fyrir vikið betur í stakk búinn til að fá væntanlega fjárfesta og samstarfsmenn á þitt band.
– Með því að tala við aðra ertu að hvetja sjálfan þig áfram. Það er hálf-neyðarlegt að segja einhverjum frá mergjaðri hugmynd sem þú vilt gera að veruleika, hitta þennan sama einstakling ári síðar og hafa ekki færst skrefi nær markmiðinu. Hugmyndir sem haldið er leyndum rykfalla mun auðveldar ofan í skúffu.
– Ekki halda að einhvers staðar annars staðar sé ekki einhver að vinna að alveg sömu hugmynd. Góðar hugmyndir verða oft til á mörgum stöðum á sama tíma og það er framkvæmdin sem ræður úrslitum en ekki hugdettan.
– Oft ræður útfærslan meiru um árangurinn en hugmyndin sjálf. Þú hefur örugglega einstaka sýn á það hverju þú vilt áorka, og sérð fyrir þér smæstu smáatriði, hugsar um viðskiptahugmyndina þína vakinn og sofinn. Hugmyndaþjófarnir mega sín lítils gagnvart þessu. Það er eitt að framleiða snjallsíma og annað að framleiða iPhone.
– Jafnvel ef hugmyndinni er stolið, og hugmyndaþjófurinn verður ríkur af, þá verður það ekki af þér tekið að þú ert hugmyndamanneskja. Þú færð eflaust aðra og enn betri hugmynd áður en langt um líður, en hugmyndaþjófurinn verður alltaf ófrumlegur og undir meðallagi.
…svo geturðu alltaf farið Winklevoss-leiðina og staðið uppi 17 milljörðum króna ríkari.