Áður hefur verið skrifað um Richard Branson hér á Frumkvöðlar.is og hvernig hann er einstaklega lunkinn við að skapa fyrirtækjum sínum sýnileika í fjölmiðlum.
Uppátækin hafa verið af ýmsum toga, og hafa spannað allt frá því að reyna að ferðast umhverfis hnöttinn í loftbelg yfir í að fara í flugfreyjubúning (í varalit og háum hælum) vegna „veðmáls“ við stjórnanda Air Asia.
Þegar Sir Richard tekur sig til stökkva fjölmiðlar á fréttina og Virgin fær jákvæða og áberandi umfjöllun hringinn í kringum hnöttinn, og kostar sama sem ekki neitt. Sýnileikinn er hæglega milljóna dala virði í hvert sinn.
Bæði frumkvöðlar og rekstramenn almennt ættu að sjá hvort þeir geti ekki tileinkað sér sumar aðferðir Virgin-kóngsins. Ef menn kunna þá list að „búa til fréttir“ er hægt að fá heilmikinn sýnileika og ávinningurinn á við rándýra auglýsingaherferð.
Fyrst er gott að huga að því hvort hægt er að gera óáhugaverðar fréttir áhugaverðari. Stendur til að undirrita enn einn samninginn, og senda út mynd á fjölmiðla þar sem helstu stjórnendur sitja skælbrosandi í jakkafötum við borð inni í fundarherbergi? Af hverju ekki að grínast aðeins og hringja í Gunnar Nelson?
Ertu poppkóngur sem veður í milljörðum og vantar ódýra kynningu á nýju plötunni þinni? Af hverju ekki að búa til risavaxna styttu af þér og finna henni stað í miðri Thames?
Ertu úrsmiður á Laugaveginum og langar að kynna nýtt íþróttaúr sem þolir hvað sem er? Hví ekki að fá lánaðan geimfarabúning og byggja upp forvitnina í nokkra daga með því að rölta um bæinn í dularfullum búningnum?