Ég hef í gegnum árin stofnað nokkur fyrirtæki hér á Íslandi og að mörgu leiti er það ekki svo flókinn ferill, sérstaklega þegar maður er búinn að fara í gegnum hann einu sinni áður. Það sem hefur þó alltaf pirrað mig afskaplega mikið er sú staðreynd að kostnaðurinn við að skrá fyrirtæki hér á Íslandi er kr.130.500-.
Það er afar ólíklegt að raunkostnaður ríkisskattstjóra við það að skrá fyrirtæki hjá sér sé svo mikill enda líklega ekki svo mikil vinna fyrir starfsmenn skattstjóra. En ef raunkostnaður þeirra er ekki svo mikill þá hlýtur það að þýða að allt það sem kemur inn umfram raunkostnaðinn sé tækifæri fyrir ríkið að hagnast á framtakssemi íslenskra frumkvöðla þ.e.a.s. að í staðinn fyrir að ríkið sé að styðja við fátæka frumkvöðla, sem eru að reyna byggja upp virði og störf fyrir sjálfa sig og aðra, hefur ríkið ákveðið að reyna skattleggja framtakssemi þeirra.
Allir þeir sem hafa tekið að sér það mikla og erfiða verkefni að byggja upp eigin rekstur gera sér grein fyrir hversu rosalega erfitt það er og hversu mikilvægt það er að hver einasta króna sé nýtt á sem bestann hátt. Hundrað og þrjátíu þúsund krónur eru því yfirleitt mjög mikill peningur fyrir þessa frumkvöðla og í flestum tilfellum stærsti kostnaðarliður þeirra á upphafsstigum rekstursins. Í öllum öðrum löndum sem ég hef kynnt mér frumkvöðlastarf er skráningarkostnaðurinn mun lægri og því má með sanni segja að ríkisskattstjóri sé að veikja samkeppnisstöðu íslenskra frumkvöðlafyrirtækja á alþjóðamarkaðnum með því að skattleggja þau svona hárri upphæð strax í upphafi.
Samanburður á skráningarkostnaði fyrirtækja.
Ísland: kr.130.500-
Kanada: kr.40.000- (326% dýrara á Íslandi)
Svíþjóð: kr.33.000- (395% dýrara á Íslandi)
Danmörk: kr.16.700- (781% dýrara á Íslandi)
USA: kr.9.000- (1.450% dýrara á Íslandi)
* Ég hef einnig heyrt að það sé stundum frítt að skrá fyrirtæki á norðurlöndunum ef um er að ræða nýsköpun en ég hef ekki kynnt mér það nánar.
Lágmarkshlutafé sem þarf að leggja í fyrirtæki á Íslandi (kr.500.000-) er að mínu mati einnig alltof hátt og algjör óþarfi en ég ætla láta þá umræðu bíða betri tíma.
Ég tek það skýrt fram að ég hef ekkert á móti skattlagningu enda er það mikilvægt til að tryggja gott samfélag fyrir okkur öll en mér finnst það mjög ósanngjarnt að vera rukka svo há gjöld af fólki sem er að reyna skapa virði fyrir samfélag okkar.
Endileg deildu með okkur skoðunum þínum á þessu máli hér fyrir neðan.