Þegar verið er að hefja rekstur er oft lítið um fjármagn til að eyða í markaðssetningu en það er þó engin afsökun fyrir því að markaðssetja ekki fyrirtækið. Sem frumkvöðull er það hlutverk þitt að finna frumlegar, skemmtilegar og fjárlitlar aðferðir til að láta fyrirtækið þitt ganga upp. Ég ætla því að deila hérna með ykkur nokkrum góðum leiðum sem ég hef kynnst í gegnum tíðina til að markaðssetja fyrirtæki þitt fyrir lítinn sem engan pening.
Vertu áhugaverður og komdu þér í fjölmiðla
Það að komast í fjölmiðla er ódýr og árangursrík leið til að kynna fyrirtæki þitt en til þess að fjölmiðlar vilji fjalla um fyrirtæki þitt þarf sagan að vera nógu áhugaverð. Í slíkum tilfellum er aldrei verra að vera með nóg af frumleika og hafa nægt hugrekki til að standa fyrir framan myndavélina. En það er líka mikill undirbúningur sem þarf að eiga sér stað til að fjölmiðlarnir frétti af því sem þú et að gera, þú þarft að útbúa fréttatilkynningu sem í raun er bara smá samandráttur á því sem er að gerast. Svo þarftu að safna saman upplýsingum um alla fjölmiðla sem þú telur að hefðu áhuga á sögu þinni og senda út tölvupóst á þá alla og fylgja því svo eftir með símtali daginn eftir.
Það að komast í fjölmiðla getur þannig verið næstum alveg frí leið til að markaðssetja fyrirtæki þitt en það krefst þó mikillar vinnu og undirbúnings. Svona aðeins til að kveikja í ímyndunaraflinu ykkar þá læt ég hérna fylgja með lista yfir topp 10 hluti sem Richard Branson hefur gert til að koma fyrirtækjum sínum í fjölmiðla.
Haltu fyrirlestra og deildu reynslu þinni
Allt frá því ég hóf minn fyrsta rekstur hef ég vanið mig á það að vera ófeimin við að deila reynslu minni, bæði vegna þess að ég hef lært óhemju mikið af því og vegna þess að það er góð leið til að markaðssetja vöru sína. Með því að deila með öðrum hvað þú hefur lært opnarðu fyrir bæði gagnrýni sem oftar en ekki getur verið uppbyggileg en þú færð þá líka aðra til að opna sig og deila þeirra reynslum. Það að halda fyrirlestra og kynningar út um allan bæ er líka tilvalin leið til að kynna fyrirtæki þitt. Hvort sem þú nefnir það bara á einni glæru eða notar það sem dæmisögu þá er mjög líklegt að fólk eigi eftir að muna vel eftir því og þar af leiðandi er það mjög góð markaðsssetning. Ég hef allavegana oft notað Búngaló (sáuð þið hvað ég gerði þarna) sem dæmisögu og mun halda því áfram.
Bankaðu upp á hjá viðskiptavinum þínum
Það er magnað hversu fáir fatta þetta en besta leiðin til að að selja og markaðssetja vöru þína til hugsanlegs viðskiptavinar er með því að hitta þennan viðskiptavin og segja honum frá vörunni í eigin persónu. Við erum orðin svo háð tölvunum okkar að við felum okkur á bak við samfélagsmiðla og höldum að það sé eina leiðin til að markaðssetja vörur okkar og eiga samskipti við viðskiptavini. Þegar ég stofnaði mitt fyrsta fyrirtæki þá tók ég upp á því að ganga í heilu göturnar og banka þar upp á hjá öllum fyrirtækjum sem ég fann með sölumöppuna sem ég bjó til í Word og reyndi að selja þeim vöru mína og veistu hvað… það þrælvirkaði. Svo næst þegar þú ert að kvarta yfir því hvað markaðssetning er dýr og skili litlu, prufaðu þá að standa upp frá tölvunni og hitta viðskiptavini þína í eigin persónu.
Vonandi gaf þetta ykkur einhverjar hugmyndir en endilega deilið með okkur þeim aðferðum sem hafa virkað best hjá ykkur í markaðssetningu.