Ég setti fram spurningu á facebook síðu vefsíðunnar um hvað fólk myndi vilja sjá mig fjalla um hér á síðunni og eina ábendingin sem ég fékk var sú að skrifa um hvernig maður tekur sín fyrstu skref. Á síðasta ári skrifaði ég reyndar grein sem heitir “Ég er með hugmynd, hvað nú?” og ég held að sú grein hafi tekið ágætlega á þessari spurningu en kannski mætti prufa að taka aðeins öðruvísi nálgun á þetta. Þess vegna ætla ég hérna að fylgja ykkur algjörlega í gegnum ferilinn í nokkrum einföldum skrefum. Ég mun þó ekki fara yfir hvert einasta smáatriði þar sem það myndi taka nokkrar fullskrifaðar bækur til að gera það auk þess sem ferilinn er alltaf örlítið misjafn fyrir hvern og einn. En ef þú fylgir þessum skrefum þá muntu í lok þeirra eiga fyrirtæki.
1. Taktu ákvörðun um að stofna fyrirtæki.
Það þýðir því miður ekkert að vera með hálfkák í þessu, annað hvort ætlarðu að stofna fyrirtæki eða ekki, það er ekki flóknara en það. Og ef þú ákveður að stofna fyrirtæki þá þarftu að vera tilbúin að fylgja því eftir og leggja á þig þá vinnu sem þarf til að koma því á lagirnar. Ég mæli með að þú gerir ekkert annað fyrr en þú ert búin að fullvissa þig um að þetta sé eitthvað sem þú vilt og eitthvað sem þú ert tilbúin að vinna fyrir.
2. Ákveddu hvað þú ætlar að selja.
Hvað á fyrirtækið þitt að gera? Ætlarðu að flytja inn einhverja sniðuga vöru til að selja hér heima? Ætlarðu að selja sérþekkingu þína? Ætlarðu að búa til einhverja sniðuga tæknilausn? Ég mæli með að fólk reyni að velja eitthvað sem það veit eitthvað um eða hefur einhverja þekkingu á. Það auðveldar ferilinn mikið en svo er náttúrulega alltaf hægt að læra eitthvað nýtt, ekkert sem bannar það, það tekur bara lengri tíma.
3. Fáðu staðfestingu á að það sé sniðugt.
Er þetta í alvörunni eitthvað sem einhver væri til í að borga fyrir? Reyndu að leita ráða hjá einhverjum sem hefur gert eitthvað svipað og þú ert að fara gera eða einhvern sem hefur þekkingu á markaðnum sem þú ert að fara inn á. Fáðu álit þess aðila á hvort hugmyndin þín sé góð eða slæm. Þú þarft algjörlega ekki að fara eftir því sem sá aðili segjir en það getur þó gefið þér einhverja hugmynd. Reyndu svo að búa til prufutýpu af vörunni þinni og selja hana eða fá inn einhverskonar tekjur til að staðfesta að það sé eftirspurn eftir þessari þjónustu/vöru.
4. Stofnaðu fyrirtæki.
Farðu til lögfræðings eða endurskoðenda til að láta þá útbúa stofnpappírana fyrir þig og fáðu ráðlegginar frá þeim í leiðinni hvernig þú eigir að sjá um bókhald og annað slíkt. Greiddu þann 150þús kjall sem kostar að fá kennitöluna og þann kostnað sem lögfræðingurinn/endurskoðandinn rukkar þig og bimmballabúmm! Þremur til fimm virkum dögum síðar ertu komin með fyrirtæki.
Það er í raun afar einfalt að stofna fyrirtæki, það erfiða er að láta það skila hagnaði og ganga upp. En það er efni í hundruði annara greina 🙂