Fyrir nokkrum árum síðan var ég líkt og svo margir aðrir ungir menn að prufa mig áfram og reyna finna leiðir til að græða pening og starfa sjálfstætt. Það var fátt sem ég prufaði ekki en meðal þess sem ég prufaði á þessum tíma var bílabrask, internetviðskipti, hlutabréfaviðskipti, franchise fyrir ýmiskonar fyrirtækjarekstur, sala DVD mynda í kolaportinu, innflutningur á hinu og þessu, fasteignaviðskipti, þjónusturekstur og sitthvað fleira. Það skemmtilega við þetta allt saman var að öll þessi viðskiptatækifæri virtust búa yfir óendanlegum möguleikum og ég var yfirleitt með 5-10 hugmyndir í gangi á hverjum tíma.
Þetta er mjög einkennandi fyrir marga frumkvöðla að þeir hafa svo gaman af því að byrja eitthvað nýtt að þeir eru, líkt og ég var, alltaf með fullt af hugmyndum í gangi. Það sem maður gerir sér svo grein fyrir eftir að hafa verið í rekstri í lengri tíma er að stundum er betra að einbeita sér bara að einum hlut og gera hann vel frekar en að vera með tugi hugmynda í gangi og framkvæma þær allar með ófullnægjandi hætti.
Það er atriði úr skemmtilegri bíómynd með Billy Crystal í aðalhlutverki sem heitir City Slickers frá 1991 og þetta atriði tekur vel saman þann fróðleik sem mér langar til að deila með ykkur. Þar er gamli kúrekinn búinn að finna tilgang lífsins, sem er mjög einfaldur, finndu þetta eina atriði sem skiptir þig máli og einbeitu þér að því. Það sama má segja um fyrirtækjarekstur, finndu eina hugmynd sem þú hefur ástríðu fyrir og einbeitu þér nær eingöngu að henni þangað til þú hefur náð góðum árangri með henni, þá fyrst geturðu farið að skoða aðrar hugmyndir ef þú svo kýst. Mín reynsla segjir mér að það þurfi yfirleitt 2-3 ár í að framkvæma hverja hugmynd og koma henni á þann stað að hún sé búinn að sanna sig.
Ég veit að það er skemmtilegt að vera alltaf að byrja nýjar og nýjar hugmyndir en ef þú vilt virkilega ná árangri þá þarftu að velja þér eina hugmynd og fylgja henni alla leið.