Þóranna K. Jónsdóttir sem á og rekur Markaðsmál á mannamáli kíkti í heimsókn til mín niðrá skrifstofu og ég nýtti tækifærið til að taka smá viðtal við hana sem ég ætla deila hérna með ykkur. En kjarnin í máli hennar voru þessi 3 góðu ráð fyrir sprotafyrirtæki.
1. Taktu góðan tíma til að vinna undirbúningsvinnuna rétt.
2. Skilgreindu vörumerkið vel og hvað felst í því.
3. Tengdu markaðssetninguna við lífsgildi þín og viðskiptavina þinna.
Fyrir frekari upplýsingar getið þið kíkt inn á vefsíðu Markaðsmála á Mannamáli, www.mam.is.