Á undanförnum árum hefur hópfjármögnun(e.crowd funding) orðið vinsæl leið til að fjármagna ýmis verkefni og fyrirtæki. Stærstir á þessu sviði er líklega vefsíðan Kickstarter sem margir eru farnir að þekkja í dag. Það er þó örlítið erfiðara fyrir íslensk fyrirtæki til að nýta sér þá þjónustu þar sem nauðsynlegt er að vera með bandarískan bankareikning sem flækir málin örlítið. Það eru þó til dæmi um að íslensk fyritæki hafi notað Kickstarter með góðum árangri og sem dæmi um slíkt verkefni má benda á Startup Kids sem ég fjallaði um í síðustu færslu minni.
Ragnar Freyr er grafískur hönnuður sem ég deildi skristofu með í fyrra og um daginn þá heimsótti ég hann upp á gömlu skrifstofuna mína og fórum við að spjalla um nýja bók sem hann er að gefa út í samstarfi við Breakbeat. Ég varð vægast sagt spenntur að heyra meira þegar ég frétti það að þeir höfðu fjármagnað útgáfu bókarinnar með “crowd funding”. Og ekki nóg með það heldur gerðu þeir það allt sjálfir frá grunni, þ.e.a.s. þeir settu upp einfalda og skilvirka vefsíðu þar sem allar upplýsingar um hugmyndina komu fram og áhugasamir aðilar gátu sett pening í verkefnið með millifærslu. Styrkveitendur hluti svo þakklætisgjafir fyrir framlag sitt, ef ákveðin upphæð var sett í verkefnið þá fengu þeir bók, ef þeir settu örlítið meira fengur þeir bók og miða á útgáfutónleikana o.s.frv.
Bókin heitir Taktabrot og þið getið sé vefsíðuna sem þeir notuðu til að fjármagna þetta á slóðinni http://bok.breakbeat.is/.