UnConference 2012 er heldur frábrugðin tegund af ráðstefnu/námskeiði þar sem árangur þátttakenda er að miklu leiti bara undir þeim sjálfum komið. Þátttakendur vinna nefnilega í sameiningu dagskrá viðburðarins og hjálpa hver öðrum. Við þetta bætist svo að hópur reynslubolta kemur á staðinn til að veita þátttakendum ráðleggingar og deila með þeim reynslu sinni.
Hérna er smá myndband um viðburðinn:
Hvað er unConference? from Landsbankinn þinn on Vimeo.
Dagskráin er svo eitthvað á þessa leið.
1. Dagurinn hefst á skráningu og afhendingu ráðstefnugagna.
2. Þátttakendur koma saman til að móta dagskrá ráðstefnunar.
3. Einkaviðtöl bókuð hjá leiðbeinendum.
4. Umræðuhópar koma saman til að ræða hin ýmsu mál.
5. Einkaviðtöl við leiðbeinendur.
Frekari upplýsingar um viðburðinn má svo nálgast á vef Landsbankans og þar fer einnig fram skráning á viðburðinn. Ráðstefnan fer fram 3. Nóvmber og eru einungis 100 sæti laus svo ég mæli með að fólk skrái sig tímanlega.
Ég verð svo sjálfur þarna á staðnum sem leiðbeinandi og mér skilst að þátttakendur geti valið hvaða leiðbeinendur þeir hitta svo ef þið hafið einhverjar spurningar fyrir mig eða ég get eitthvað aðstoðað þá mun ég gera það með glöðu geði. Hlakka til að sjá ykkur öll á þessum áhugaverða viðburði 🙂