Hér áður fyrr gagnrýndi ég oft þá mentora/leiðbeinendur innan frumkvöðlaumhverfisins sem voru mjög harðir við unga frumkvöðla. En þrátt fyrir það hef ég sjálfur í seinni tíð farið að verða mun harðari við unga frumkvöðla og er ófeimnari við að segja mínar skoðanir á fyrirtækjum þeirra.
Ástæðan fyrir þessari auknu harðneskju minni er ekki það að mér líki illa við frumkvöðlana eða hugmyndir þeirra heldur er það frekar útaf því að ég er að benda á hluti sem ég sjálfur vildi óska þess að ég hefði vitað fyrr í ferlinum. Staðreyndin er sú að það að ná árangri í fyrirtækjarekstri getur verið eitthvað það erfiðasta sem þú kemur til með að taka að þér á lífsleiðinni (ef þú fylgir því eftir alla leið). Þú munt þurfa taka erfiðar ákvarðanir og eyða mörgum árum af ævi þinni í að byggja eitthvað upp sem þú veist ekki hvort muni ganga upp eða ekki. Flestir mentorar þekkja þetta af eigin raun og þegar þeir eru að gagnrýna unga frumkvöðla þá eru þeir ekki að gera það af einhverri illkvittni heldur þvert á móti eru þeir að reyna sitt besta til að stytta þennan erfiða feril hjá frumkvöðlunum.
Ég vil þó taka það skýrt fram að mentor á aldrei að vera ókurteis eða niðrandi í gagnrýni sinni á ungum frumkvöðlum og ég mun ekki hika við að eiga orð við þann mentor sem gerist sekur um slíkt. En ég skil núna betur afhverju mentorar eru stundum harðir við unga frumkvöðla, einfaldlega útaf því að þeir eru að reyna undirbúa þá betur undir það sem koma skal.
Ég vil því biðja alla þá sem hafa og munu fá harða gagnrýni frá mentorum um að taka því ekki illa heldur frekar að líta á það sem tækifæri til að betrumbæta viðskiptahugmyndir sínar.