Eitt af því sem fólk kvartar mest yfir þegar það er að stofna fyrirtæki er hversu erfitt það er að nálgast fjármagn. Bankar lána yfirleitt ekki til nýrra fyrirtækja nema að það sé til einhverskonar veð fyrir því og það reynist mörgum erfitt að finna fjárfesta og hvað þá áhugasama fjárfesta sem eru tilbúnir að leggja pening í fyrirtækið.
Ég hitti í gær tvo af stofnendum Karolina Fund, sem þessa dagana keppir til úrslita í Gullegginu, þá Inga Rafn og Jónmund. En Karolina Fund hefur einmitt þann tilgang að leysa ofangreint vandamál og hjálpa ungum fyrirtækjum og frumkvöðlum að nálgast fjármagn í gegnum hópfjármögnun (e. crowdfunding). Heyrum hér aðeins hvað þeir höfðu að segja:
Þannig að Karolina Fund kemur til með að búa til vettvang fyrir skapandi fólk til að leita sér hópfjármögnunnar fyrir verkefni sín. Með því að setja upp ýtarlegar upplýsingar um verkefnin svo sem vidjó, ýtarlegar textalýsingar, markmið, fjárþörf o.f.l. geta hugsanlegir fjárfestar fengið allar þær upplýsingar sem þeir þurfa til að taka ákvörðun um hvort þeir vilji fjárfesta. Það skemmtilega við uppsetninguna á þessu er að hver sem er getur fjárfest í þessum hugmyndum, þú þarft ekki að vera fagfjárfestir heldur einungis að eiga smá pening og þá getur þú lagt þann pening í eitthvað verkefni sem vonandi mun skapa störf og tekjur fyrir íslensku þjóðina auk þess sem þú sjálfur gætir grætt betur á því heldur en ef peningurinn sæti bara í bankanum.
Hægt er að setja upp verkefni þar sem leitað er eftir minni fjárfestum sem þá fá hugsanlega prótótýpu ef vörunni eða eitthvað annað spennandi í þakklætisskyni fyrir sitt framlag. Einnig er þó hægt að setja upp stærri verkefni þar sem fjárfestarnir fá raunverulegan hluta í fyrirtækinu og geta þá orðið meðeigendur í hugmyndinni. Þessi vettvangur ætti því að vera spennandi valmöguleiki fyrir stórar sem smáar hugmyndir í framtíðinni.
Ef þið hafið áhuga á að vita meira um hugmyndina, hafið áhuga á einhverskonar samstarfi eða jafnvel ef þið viljið fjárfesta í henni þá getið þið haft samband við hann Inga Rafn með tölvupósti í netfangið contact@karolinafund.com.