Katrín Sylvía Símonardóttir er stofnandi fyrirtækisins kasy, en næstu helgi keppir það fyrirtæki til úrslita í Gullegginu sem er frumkvöðlakeppni á vegum Innovit. Viðskiptahugmynd Katrínar felst í því að framleiða sundfatnað fyrir konur með línur og er hægt að aðlaga sundfatnaðinn að aðstæðum að hverju sinni.
Ég skellti mér í smá bíltúr með henni Katrínu þar sem ég truflaði hana við akstur með allskonar skemmtilegum spurningum. Þess má líka geta að ég tók viðtalið upp á símann minn svo tæknilega séð var hún að tala í símann við aksturinn 🙂
Kasy sundfötin fara bráðlega í framleiðslu og því augljóst að kvennmenn út um allan heim þurfa ekki að bíða alltof lengi eftir því að geta fjárfest í slíkri hönnun. En fyrir þau ykkar sem getið ekki beðið þá getið þið nálgast frekari upplýsingar á facebook síðu kasy.
Ef þið hafið áhuga á að vita meira um hugmyndina, hafið áhuga á einhverskonar samstarfi eða jafnvel ef þið viljið fjárfesta í henni þá getið þið haft samband við hana Katrínu með tölvupósti í netfangið kasydesign@gmail.com.