Um leið og þú lest titil þessarar færslu þá veit ég að þú ert að leita eftir einhverjum djúsí endurminningum frá mér. Ég ætla að byrja á því að valda þér vonbrigðum: þetta er bókaumfjöllun. Í gegn um tíðina hef ég aldrei verið mikið fyrir endurminningar og ævisögur. Hins vegar er ég þeirrar skoðunar að maður geti lært af því hvernig aðrir hafa hagað hlutunum hjá sér, tala nú ekki um ef viðkomandi er milljarðamæringur!
Sir Richard Branson er svalasti milljarðamæringur í heimi. Hann er fæddur í Bretlandi árið 1950 og þrátt fyrir að vera lesblindur og hafa aldrei farið í háskóla er hann í dag í 254. sæti yfir ríkustu mönnum heims. Richard Branson er mikið átrúnaðargoð hjá mér, ekki af því hann er ríkur – heldur hvernig hann hefur orðið ríkur. Ekki nóg með að maðurinn eigi eyju í Karabíska hafinu, hafi flogið í loftbelg yfir Atlantshafið og hafi bjargað gíslum úr Íraksstríðinu, heldur er hann núna að fara að selja ferðir út í geim og niður í dýpstu höf. Hann á Virgin veldið en allir ættu að þekkja Virgin Atlantic flugfélagið, Virgin Music útgáfuna, Virgin Mobile farsímafélagið og svo lengi mætti telja. Ég held að Richard Branson sé efni í nokkrar færslur þannig ég mæli með að þið lesið ykkur til um hann og hvað hann er að gera á Wikipedia. Ég ætla að einblína á ævisöguna hans sem ég var að klára.
Ég keypti ævisögu Bransons á Audible og hlustaði á hana í einum rikk í vikunni. Bókin kemur út árið 1998 og er því orðin nokkuð gömul. Richard Branson skrifar hana sjálfur og les sjálfur inn á hljóðbókina sem er mjög skemmtilegt. Ég reikna með að hún sé tekin upp heima hjá honum á Necker Island en stundum má heyra fuglasöng inn á milli. Mjög heimilislegt allt saman.
Eins og áður sagði var Richard Bransson fæddur í Bretlandi árið 1950. Hann sér illa og er lesblindur en samt var hann farinn að gefa út tímaritið Student í kring um 18 ára aldurinn. Í gegn um Student datt hann inn í að selja plötur í gegn um póstlista. Þegar póstburðarmenn í Bretlandi fóru í verkfall stefndi póstlistaþjónustan í gjaldþrot. Til að bjarga litla fyrirtækinu sínu fann hann, ásamt félögum sínum, autt rými í London og setti upp búð á fimm dögum og var þar með kominn í verslunarrekstur. Veldið byggðist hægt og bítandi upp eftir því sem þeir opnuðu fleiri búðir og færðu sig svo yfir í útgáfubransann. Mike Oldfield var fyrsti alvöru tónlistarmaðurinn sem skrifaði undir hjá Virgin en eftir því sem leið á bættust við í hópinn listamenn eins og Sex Pistols, Human League, Boy George og Janet Jackson til að nefna nokkra
Richard Branson hefur alltaf haft gaman af því að ögra sjálfum sér og öðrum. Ef þú kemur með nógu klikkaða hugmynd til hans, er hann örugglega til í að taka þátt í henni. Þannig datt hann inn í flugfélagsbransann, þrátt fyrir að hafa ekki neina reynslu af slíkum rekstri og Virgin Atlantic varð til. Í dag er Virgin Atlantic eitt þekktasta nafnið í fluggeiranum og flýgur út um allan heim.
Auk þess að segja frá viðskiptasigrum sínum hleypir Branson lesendum (og hlustendum) inn í líf sitt utan peninganna. Hann segir frá hjónabandi sínu, barneignum, hvernig honum líður eða leið og hvað hann var að hugsa á hverjum tíma. Það er mjög gaman að heyra hann segja frá Joan, konunni sinni, sem hann elskar greinilega heitt, og börnunum sínum Holly og Sam. Einnig segir hann frá því hversu nærri sér hann tekur að sjá fólk í neyð, en í fyrra Íraksstríðinu lét hann fljúga Boeing 747 vél til Bagdad til að frelsa gísla stuttu áður en borgin var lögð í rúst af flugherjum vesturveldanna. Hann segir einnig á lifandi hátt frá því þegar hann flýgur í loftbelg yfir Atlantshafið og eins þegar hann reynir að setja heimsmet í því að sigla yfir sama haf. Eins fer hann yfir hápunkta og lágpunkta á sínum ferli og það er virkilega gaman að hlusta á hann tala.
En hvernig var bókin?
Ég gaf bókinni 5 stjörnur af 5 mögulegum. Kannski er ég ekki hlutlaus enda var maðurinn í miklu uppáhaldi hjá mér áður en ég keypti hana. Engu að síður er hún skemmtilega skrifuð, full af kímni og einlægni. Richard Branson hefur gífurlegan húmor fyrir sjálfum sér og greinilega elskað hverja mínútu af því sem hann hefur gert, og það skín vel í gegn.
Ef það er eitthvað sem hægt er að setja út á er það að hann eyðir stórum hluta bókarinnar í að fara í rimmuna sem hann háði við British Airways í byrjun 10. áratugarins, sem á endanum var útkljáð í réttarsal. Hann fer yfir þann slag af kostgæfni og endursegir samtöl orð fyrir orð. Ég held samt að ástæðan fyrir því að hann geri það er bara til að sýna fram á hvað þolinmæði, kjarkur og baráttuvilji skilar miklu í lok dags.
Ég mæli með því fyrir alla sem hafa áhuga á viðskiptum að annað hvort lesa eða hlusta á Losing my Virginity. Einnig ætti hún að veita þeim innblástur sem hafa annað hvort áhuga á að stofna fyrirtæki eða eru með hugmynd sem virðist klikkun en langar að láta hana verða að veruleika. Hana má fá á Audible eða Amazon. Einnig er rétt að minna á nýja bók eftir Branson sem heitir Screw Business As Usual en hún kom út í haust. Að lokum er vert að minnast á bloggið hans Richards sem ég les mjög oft. Meistarinn er líka á Twitter og það er hægt að elta hann: @richardbranson.