Ertu með frábæra hugmynd?
Sem gæti skapað hundruði milljóna?
Og þarftu bara einhvern til að framkvæma hana fyrir þig?
eða kannski bara einhvern til að gefa þér fullt af pening svo þú getir framkvæmt hana?
Þá þykir mér leiðinlegt að láta þig vita að þú ert ekki með nein verðmæti í höndunum. Ég hef aðstoðað og leiðbeint hundruði einstaklinga sem eru að taka sín fyrstu skref í fyrirtækjarekstri og algengustu mistök sem ég sé hjá þessum einstaklingum er að þeir halda að hugmynd þeirra ein og sér sé milljóna króna virði.
Staðreyndin er sú að hugmynd án framkvæmdar er ekkert annað en draumur sem aldrei mun rætast. Ef þú ert ekki sjálf(ur) tilbúin að láta hugmyndina verða að veruleika og leggja á þig þá miklu vinnu sem því fylgir þá verður hún aldrei að veruleika. Það mun engin framkvæma hana fyrir þig, það mun engin bara gefa þér pening til að framkvæma hana, þú munt ekki fá styrk frá ríkinu eða lán (án sjálskuldarábyrgðar og veðs) hjá bankanum. Þú þarft sjálf(ur) að framkvæma hana, leggja þitt blóð, svita og tár í hana.
Ég er ekki að segja að þú eigir ekki að framkvæma hana, þvert á móti er ég að segja að ef þú vilt virkilega sjá hugmynd þína að veruleika þá verðurðu að framkvæma hana sjálf(ur). Það er ekkert auðvelt við það að búa til verðmæti úr hugmynd, það krefst mikillar vinnu og aga og hugsanlega 1-2 ár þar sem þú lifir á núðlusúpum vegna þess að þú hefur ekki efni á öðru.
En þótt svo að hugmynd sé einskis virði þá þýðir það ekki að þið getið ekki grætt á henni. Ef þið fáið góða hugmynd og framkvæmið þá gætuð þið hugsanlega skapað mikil verðmæti fyrir ykkur sjálf og samfélagið í heild.
Ég er að skrifa þessa grein ekki til að gagnrýna hugmyndir ykkar eða vera leiðinlegur heldur til að flýta all verulega fyrir ferlinum ykkar með því að segja ykkur hvað þið eigið ekki að vera eyða tíma ykkar í að hugsa um. Þannig getið þið vonandi farið beint í að vinna í uppbyggilegum hlutum og vonandi náð að gera hugmyndir ykkar að veruleika fyrr. Hérna kemur listinn yfir þær hugsanir sem ber að varast þegar verið er að vinna með hugmynd.
5 atriði sem bannað er að hugsa
1. „Ég sel bara einhverju stóru fyrirtæki hugmyndina“
Nema þú sért með eitthvað einkaleyfi eða einhverskonar sönnun á gæðum vörunar þá er þetta afskaplega langsótt. Ég hef allavegana aldrei á mínum ferli heyrt um neitt dæmi um að einstaklingur selji hugmynd sína á byrjunarstigi fyrir einhverja upphæð. Aftur á móti hef ég heyrt dæmi um aðila sem eyða árum í að þróa einhverskonar hugmynd, fá einkaleyfi á hugmyndin og selja hana svo til einhvers fyrirtækis en það gerist ekki yfir nóttu, það tekur langan tíma.
2. „Ég fæ bara einhvern annan til að gera þetta fyrir mig“
Verðmæti hugmyndarinnar eru ekki fólgin í því hversu góð hugmyndin er heldur hversu vel hún er framkvæmd. Ef þú finnur aðila sem er nógu hæfileikaríkur til að gera hugmynd þína að veruleika og breyta henni í pening þá væru mikil verðmæti í því fyrir þig að fá slíkan aðila til liðs við þig. Aftur á móti myndi slíkur aðili geta gert verðmæti úr flestum hugmyndum og þú hefðir því engin verðmæti fyrir hann á móti. Þú getur heldur ekki bara greitt einhverjum fyrir þetta því ferillinn á bak við það að gera hugmynd að veruleika tekur fleiri fleiri mánuði eða ár og þú getur líklega ekki verið með persónu á launaskrá í þetta langan tíma án þess að fá tekjur á móti. Þú þarft líka að vera fjölhæfur einstaklingur til að framkvæma þetta og manneskja sem er með eldmóð fyrir að láta hugmynd sína verða að veruleika er tilbúin að stíga út fyrir þægindasvæði sitt og takast á við allskonar áskoranir sem venjulegur starfsmaður myndi ekki leggja á sig.
3. „Ef ég fyndi nú bara einhvern til að fjárfesta í hugmyndinni“
Almennt séð er talað um að bara hin þrjú-F fjárfesti í hugmyndum á upphafsstigum en það eru sem sagt Family, Friends and Fools (fjölskylda, vinir og fáfróðir). Hugsanlega gætuð þið fengið vini og fjölskyldumeðlimi til að fjárfesta í hugmynd ykkar en spurning er hvort þið viljið vera taka áhættu með fjármuni fjölskyldu ykkar, enda er ekkert öruggt í slíkum fjárfestingum. Þið fáið ekki neina alvöru fjárfesta til að fjármagna hugmynd ykkar fyrr en þið eruð komin mun lengra í ferlinum, flest frumkvöðlafyrirtæki sem ég þekki til hafa fengið fjárfesta inn ca. 1-2 árum eftir að þeir hefja reksturinn og þá í flestum tilfellum þegar búið er að sanna tekjumódelið.
4. „Bankinn hlýtur að vilja lána mér fyrir þessari frábæru hugmynd“
Bankar lána þér ekki neitt nema þeir séu 100% öruggir um að fá það til baka og þess vegna munu þeir þurfa fá veð í fasteign eða sjálfskuldarábyrgð eða bæði fyrir láninu. Það lánar engin banki þér pening bara út á góða hugmynd eða flotta viðskiptaáætlun. Þú skalt einnig varast það að byrja fyrirtækjarekstur þinn í skuld, enda á reksturinn alltaf eftir að verða dýrari en þú áttir von á.
5. „Ég hlýt að geta fengið ríkið til að styrkja þetta enda styrkja þeir listir/nýsköpun/frumkvöðla/fyrirtæki“
Það eru einhverjir styrkir í boði og þið eigið einhvern möguleika á að fá þá styrki en það er tímafrekt og yfirleitt eru það lágar upphæðir. Þið megið endilega sækja um þessa styrki og láta á það reyna en reynið að forðast það að byggja hugmynd ykkar á því að þið fáið styrk. Það er oft miklu sniðugra að hugsa bara í lausnum og finna ódýrari leið til að framkvæma hugmyndina.
Látið hugmyndir ykkar verða að veruleika
en látið bara ekki hluti eins og skort á fjármagni
eða lítinn stuðning koma í veg fyrir að þið framkvæmið.
Það er alltaf hægt að finna leið
til að láta hugmyndir verða að veruleika
með eigin hugarafli og mikilli vinnu.