18. október næstkomandi fer fram ráðstefna undir yfirskriftinni „Frumkvöðlar eru framtíðin“ í Salnum í Kópavogi. Þar koma fram margar konur sem hafa gert það gott í frumkvöðlastarfi og fjalla um stofnun og rekstur á eigin fyrirtækjum. Á ráðstefnunni verður leitast við að svara spurningum í tengslum við alþjóðavæðingu fyrirtækja, fjárfestingarmat, nálganir og aðferðir við fjármögnun og mikilvægi tengslanetsins bæði í innlendu og erlendu samhengi svo fátt eitt sé nefnt.
Nánari upplýsingar um viðburðinn má finna á vefsíðu NMI.