Ég kynntist henni Ingibjörgu Grétu Gísladóttur fyrst fyrir nokkrum árum síðan þegar hún rak Hugmyndhúsið við Grandagarð og það fór ekkert á milli mála að þar var öflug manneskja á ferðinni. Í framhaldi af því hefur hún haldið áfram að starfa í frumkvöðlaumhverfinu og stofnaði fyrirtækið Reykjavik Runway, nú þegar hefur fyrirtækið náð að verða vel sýnilegt í íslenskum tískuheimi enda skipulagði það glæsilega hönnunarkeppni sumarið 2012.
Reykjavik Runway er eitt af 10 fyrirtækjum/viðskiptahugmyndum til að komast í úrslit í Gullegginu og því fannst mér það nauðsynlegt að heyra aðeins í henni Ingibjörgu og biðja hana um að segja okkur aðeins frá fyrirtækinu og framtíðarplönum þess.
Stefna Ingibjargar með fyrirtækið er að reyna aðstoða íslenska fatahönnuði við að koma sér á framfæri á alþjóðavettvangi. Það kemur til með að vera gert í gegnum internetið með öflugri vefsíðu, við það bætast svo öflug áhersla á markaðsmál og tengslanet við mikilvæga aðila í tískuheiminum erlendis.
Ef þið hafið áhuga á að vita meira um hugmyndina, hafið áhuga á einhverskonar samstarfi eða jafnvel ef þið viljið fjárfesta í henni þá getið þið haft samband við hana Ingibjörgu með tölvupósti í netfangið igg@reykjavikrunway.com.