Ég hef aldrei hlustað á hljóðbækur. Í vor skráði ég mig samt með aðgang á Audible.com og ætlaði svo aldeilis að fara að hlusta. Nýir meðlimir fá að sækja eina bók sér að kostnaðarlausu og ég rakst á bókina Tribes: We need you to lead us eftir Seth Godin. Svo varð að sjálfsögðu ekkert af allri hlustuninni fyrr en ég fór út að hlaupa um helgina. Þá sótti ég Audible forritið í símann minn og gróf bókina upp úr einhverri möppunni.. Það er furðu þægilegt að hlusta á hljóðbækur, sérstaklega þegar maður er að hlaupa. Maður er aðallega að láta hugann líða þegar maður hleypur og þannig er mjög gott að demba í sig smá fróðleik í leiðinni.
Seth Godin er nokkuð merkilegur maður. Hann er bandarískur frumkvöðull og rithöfundur. Hann ferðast um allan heim og heldur fyrirlestra auk þess sem hann heldur úti bloggsíðu. Hann setur inn færslu á hverjum einasta degi og hefur gert í yfir 10 ár sem hefur gert hann að einum vinsælasta bloggara í heimi. Hann talar aðallega um markaðsmál og vörumerki, en hann hefur líka farið inn á tengd málefni eins og stjórnun, leiðtogahæfni og sjálfshvatningu. Bækurnar hans hafa selst í milljónum eintaka, þær helstu heita Purple Cow, All marketers are liars og Permission marketing, auk Tribes að sjálfsögðu.
Tribes er bók um leiðtogahæfni. Í henni talar Seth um muninn á því að leiða (e. leading) og stjórna (e. managing). Rauði þráðurinn í bókinni er sá að fólk flykkir sér á bakvið leiðtoga og myndar þannig fylkingar (e. tribes). Leiðtogi segir pattstöðu stríð á hendur. Hann reynir að hafa áhrif á fólk og hrífur það með sér. Ef þú ert leiður á ástandinu sem þú ert í áttu að standa upp og gera breytingar. Ekki láta teyma þig í hjörð heldur taktu af skarið og myndaðu þína eigin fylkingu. Með tilkomu internetsins varð svo miklu miklu auðveldara að mynda fylkingar. Allt í einu voru til blogg þar sem hver var orðinn sinn eigin sérfræðingur því allir hafa rödd á netinu. Miðlar eins og Facebook og Twitter hafa auðveldað fylkingamyndun enn meira.
Bókin er ágæt. Hún er uppfull af dæmisögum og hún veitir sannarlega innblástur. Margt sem hann segir á fullkomlega rétt á sér, sérstaklega þegar kemur að því að segja stöðnun stríð á hendur og gera eitthvað. Ef ég á að setja út á eitthvað þá er hún með full mörgum dæmisögum. Seth kemur efninu frá sér fullkomlega í fyrstu köflunum og virðist vera að reyna að teygja lopann með því að bæta enn fleiri dæmisögum, sem er merkilegt miðað við að bókin er ekki nema 160 bls, eða tæpir 4 tímar sem hljóðbók. Ég myndi gefa 3 stjörnur af 5.
Við tilheyrum öll einhverjum fylkingum. Obama myndaði fylkingu sem skilaði honum forsetastóli. Steve Jobs myndaði fylkingu af fólki sem trúði á hann og hann gerði Apple að verðmætasta fyrirtæki í heimi. Þeir sem ganga nú til kosninga í Sjálfstæðisflokknum á næstu viku munu annað hvort fylkja sér á bakvið Hönnu Birnu eða Bjarna Ben, þau eru leiðtogar hvor í sínu horni með fylkingar á bakvið sig. Jón Gnarr var orðinn þreyttur á stöðnuninni í íslenskri pólitík þannig hann stofnaði Besta Flokkinn. Þá sögu þekkja allir. Ég tel ykkur lesendur góðir sem meðlimi í minni fylkingu.