Sprotafyrirtæki ættu að reyna að útbúa góðan upplýsingapakka fyrir fjölmiðla, pressu-kitt.
Þar er safnað á einn stað upplýsingum og myndefni sem fjölmiðlamenn geta síðan stuðst við þegar kemur að því að segja frá fyrirtæknu og vörum þess.
Pressu-kittið getur t.d. verið í formi sérstaks svæðis á vefsíðu fyrirtækisins þar sem hægt er að nálgast eftirfarandi gögn:
– Farsímanúmer og tölvupóstur þess sem annast fjölmiðla/almannatengslin.
– Stutt og hnitmiðuð samantekt um starfsemina og/eða vöruna. Þessi samantekt kafar ekki mjög djúpt ofan í málin, en hefur að geyma nægilegan fróðleik og staðreyndir til að fjölmiðlar hafi smá “kjöt” til að setja í grein eða frétt. Hvenær var fyrirtækið stofnað? Af hverjum? Hvað er reksturinn orðinn stór, mælt í starfsmönnum, veltu, viðskiptalöndum? Hvaða verðlaun og vegtyllur hafið þið fengið? Hvað gerir varan og hvað greinir hana frá samkeppninni? Hvar eruð þið staðsett? Hvar er varan fáanleg?
– Ítarlegri samantekt um fyrirtækið, lykilstarfsmenn og um vöruna. Þetta eru gögn fyrir þá sem vilja kafa dýpra. Hér gæti verið viðeigandi að birta stutt æviágrip stjórnenda og segja frá tæknilegum smáatriðum vörunnar sem verið er að selja.
– Afrit af eða tilvísanir í fjölmiðlaumfjöllun um fyrirtækið eða vöruna. Einnig upptökur t.d. af fyrirlestrum stjórnenda og viðtölum í útvarpi eða sjónvarpi, ef við á. (Munið að fá leyfi hjá fjölmiðlinum fyrst).
– Afrit af eldri fréttatilkynningum.
– FAQ skjal, um fyrirtækið og/eða vöruna
– Gott myndasafn: Vel teknar myndir í góðri stærð og góðri upplausn. Hér viltu hafa
1) Vel teknar myndir af lykilstarfsmönnum (hverjum fyrir sig), mögulega með vinnustaðinn í bakgrunni, eða máski skilti með nafni fyrirtækisins. Gott er líka að taka myndir þar sem varan er í bakgrunni eða forgrunni.
2) Vandaðar myndir af vörunni, mögulega á hlutlausum bakgrunni. Myndir af vörunni í notkun og tölvuteikningar, skjáskot og skýringarmyndir eins og við á.
3) Myndir af starfseminni, eitthvað til að sýna mannlífið á vinnustaðnum og iðjuna bak við tjöldin, dagleg störf í búðinni.
4) Myndir af húsnæði fyrirtækisins, verslun eða verksmiðju.
5) Lógo og önnur merki.
Mundu að fyrirtækið þarf að eiga birtingarréttinn á öllum þessum myndum.
Athugaðu að gott getur verið að gera þessi gögn aðgengileg víðar en bara undir “press” hnappinum á heimasíðunni.
– Gerðu t.d. góðar myndir og lógó aðgengileg í Facebook myndasafni fyrirtækisins, og settu helstu upplýsingar, tölvupósta og símanúmer í “about” rammann.
– Settu afrit af fjölmiðlapakkanum á Dropbox eða Google Docs svo þú getir auðveldlega deilt hlekk í gögnin (og átt af þeim afrit).
– Gættu að því, ef það er tímabært, að sagt sé frá fyrirtækinu á Wikipediu (á réttu tungumálunum) og að við greinina séu tengdar sumar af myndunum úr pressu-kittinu. Oft er það fyrsta sem fólk gerir til að fræðast um fyrirtæki eða vöru að Gúggla eitthvað á borð við “nafn fyrirtækis Wikipedia” því þar er fólk vant að geta gengið að stuttum og hnitmiðuðum upplýsingum.
– Þegar mikið liggur við, t.d. á ráðstefnum og vörusýningum, er hægt að prenta út valda hluta úr pressukittinu, setja í möppur og hafa tiltækt fyrir fjölmiðlafólk.