Ég fékk skemmtilegt bréf frá frumkvöðli sem var að hefja rekstur og var að velta fyrir sér þeim undarlegu lögum sem fjalla um það að stofnandi sé skyldugur að greiða sér út laun frá og með þeim tíma sem fyrirtæki er stofnað. Þessi lög hafa oft og mörgu sinnum komið upp í samtölum á hinum ýmsu viðburðum sem ég hef farið á þar sem frumkvöðlar eru allir jafn hissa á að slík lög séu til staðar og fæstir virðast þeir hafa farið eftir þeim. Það er náttúrulega alltaf slæmt að brjóta lög en ennþá verra ef lögin eru það illa sett fram að maður geti ekki farið eftir þeim.
Á vefsíðu RSK má finna eftirfarandi:
“Maður sem starfar við eigin atvinnurekstur á að reikna sér endurgjald (laun) fyrir þá vinnu. Með þessi laun fer á sama hátt og almennar launagreiðslur til launþega, þ.e. reikna þarf af þeim staðgreiðslu opinberra gjalda, greiða tryggingagjald og iðgjald í lífeyrissjóð.
Reglan á bæði við um mann sem stundar atvinnustarfsemi í eigin nafni (eigin kennitölu) og mann sem starfar við atvinnurekstur eða starfsemi sem rekin er í sameign með öðrum, eða við atvinnurekstur lögaðila þar sem hann er ráðandi aðili vegna eignar- eða stjórnunaraðildar.”
Allir þeir sem hafa farið út í það að stofna frumkvöðlafyrirtæki gera sér grein fyrir því að það er nær óhjákvæmilegt að maður þurfi að starfa við það launalaust í einhverja mánuði eða jafnvel ár áður en þau fara að skila nægum tekjum til að hægt sé að greiða sér manni sæmandi laun. Það er líka áhugavert að skoða viðmiðunarlaunin sem RSK ætlast til að maður greiði sér en ég held að fæstir frumkvöðlar séu að greiða sér út slík laun þótt svo þeir séu komnir eitthvað lengra inn í ferilinn.
Ég hef áður fjallaðu um hversu dýrt það er fyrir stofnendur að greiða sér laun og ég er ennþá á því að stofnendur eigi að reyna greiða sér út eins lítil laun og þeir geta fyrstu mánuðina og árin vegna þess kostnaðar.
Svarið sem ég gaf þessum skemmtilega frumkvöðli sem skrifaði mér var eftirfarandi:
“Ég hef sjálfur stofnað nokkuð fyrirtæki og hef oft einfaldlega sleppt því algjörlega að greiða mér laun til að byrja með og hef aldrei fengið neina athugasemd út á það. Ég hef einnig rætt við fólk innan RSK sem eru að vissu leiti sammála mér að þetta væri fáranleg regla og sú tilfinning sem ég fékk frá þeim var sú að þetta væri bara eitthvað sem væri ekki mikið farið eftir eða allavegana ekki mikið reynt að klekkja á nýsköpunarfyrirtækjum sem ekki greiða sér út laun.
Mér skilst að ef þú ert í annari vinnu eða í námi þá gildir þessi regla ekki og þú þarft ekki að greiða þér laun. Ég hugsa líka ef fyrirtækið hafi ekki efni á að borga þér laun þá myndi engin fara að elta þig uppi fyrir að hafa ekki gert það. Ég myndi því halda að þetta væri ekki eitthvað sem þú þyrftir að hafa áhyggjur af.”
Ég er að sjálfsögðu engin endurskoðandi eða lögfræðingur og ætla því ekki að þykjast vera neinn sérfræðingur í þessum málum að öðru leiti en því að ég hef farið í gegnum þennan ferill nokkrum sinnum. Ég ætla því að biðja þá sem hafa reynslu eða þekkingu á þessum málum að deila þeim með okkur hér fyrir neðan, ég hefði gaman af því að vera leiðréttur ef ég er að fara rangt með eitthvað hér.