Í gær sá ég forsýningu á nýrri heimildarmynd um unga frumkvöðla sem starfa í „startup“ heiminum bæði í Evrópu og Bandaríkjunum. Þessi heimildarmynd var unnin af tveimur öflugum frumkvöðlum, Sesselju Vilhjálmsdóttur og Völu Halldórsdóttur. Drifnar áfram af eigin áhuga og ástríðu fyrir að skapa og framkvæma, ákváðu þær að fara út í þetta skemmtilega verkefni með það markmið að hvetja ungt fólk til að láta drauma sína verða að veruleika. Þær ferðuðust vítt og breitt og tóku viðtöl við unga frumkvöðla út um allan heim sem hver og einn hafði náð góðum árangri á sínu sviði.
Þrátt fyrir að hafa verið búinn að vita að þessi mynd væri í vinnslu í þó nokkurn tíma, enda man í glögglega eftir því þegar hún var fjármögnuð í gegnum Kickstarter, hafði ég enga hugmynd um hvernig lokaútkoman myndi verða og var ég því vægast sagt spenntur. Myndin stóðst allar mínar væntingar og var frábærlega skemmtileg samantekt á því umhverfi sem hefur myndast í kringum „startup“ heiminn og þau tækifæri sem þar búa fyrir fólk á öllum aldri. Aldur er ekki lengur afsökun, þú ert hvorki of gamall né of ungur til að láta hugmyndir þínar verða að veruleika, það eina sem skiptir máli er að þú sért tilbúin að framkvæma og fylgja því eftir með vinnu og þrautseigju.
Maður gat ekki annað en fyllst innblástri þegar maður horfði á þessa mynd og ég þurfti að hafa mig allan við að stökkva ekki úr sætinu og hlaupa upp á skrifstofu svo ég gæti nú farið að vinna og haldið áfram að vinna í mínum hugmyndum. Ég náði þó að standast þá freistingu og mætti þess í stað ferskur á þessum ljúfa laugardegi 🙂
Ég mæli hiklaust með að þið kynnið ykkur myndina betur á vefsíðu Startup Kids eða addið þeim á twitter eða facebook.