“Whenever you see a successful business, someone once made a courageous decision.”
― Peter F. Drucker
Það getur verið mjög erfitt að takast á við krefjandi verkefni eins og að stofna fyrirtæki, gera hugmynd sína að veruleika, koma hönnuarvöru í framleiðslu á og á markaðinn, setja upp vefsíðu, byrja blogg, skrifa fyrstu viðskiptaáætlunina, opna kaffihús/verslun eða hvað það er sem þig dreymir um að gera. Þegar maður er í þessum ferli getur það verið afskaplega yfirþyrmandi tilhugsun að gera allt það sem þarf að gera og það er oft kannski erfitt að fá stuðning frá fjölskyldu og vinum þar sem þau skilja ekki alveg ferilinn sem þú ert að fara í gegnum. Ég þekki þetta vel, enda hef ég farið í gegnum þetta oftar en ég man og langar því að deila eftirfarandi fjórum ráðum með ykkur í þeirri von að þau styðji við ykkur í verkefnum ykkar.
1. Þú getur þetta.
Alveg sama hvað þú ert að fara gera, þú getur það. Það er ótrúlegt hvað við getum gert þegar við ákveðum að það komi ekkert annað til greina en að ná því markmiði sem við setjum.
2. Hættu að kvarta og finndu lausn.
Þetta verður erfitt og þú verður að vera tilbúinn að fara út fyrir þægindasvæði þitt og veðja peningum þínum og tíma á sjálfan þig og þá staðreynd að þú getir þetta. Það segir sig ekki alltaf sjálft hvernig eigi að gera hlutina og því þarftu að vera ófeimin við að lesa þér til, spyrja fólk sem hefur reynslu, afla þér upplýsinga og hreinlega bara gera allt sem þú getur til að finna leið til að láta hlutina verða að veruleika. Allir þeir sem hafa gert eitthvað í fyrsta skipti hafa þurft að finna út úr því hvernig það er gert með einum eða öðrum hætti, þú ert engin undantekning.
3. Hættu að hika og stökktu.
Ef þú ert búinn að finna svörin við öllum spurningum þínum (eða flestum allavegana) og veist hvernig þú átt að gera þetta en ert feiminn við að framkvæma þá verðurðu bara að bretta upp ermarnar, sparka í rassinn á sjálfum/sjálfri þér og stökkva fram af klettinum og ofan í ánna. Áin mun svo vonandi leiða þig á réttan áfangastað, ef ekki þá stekkurðu bara aftur 🙂
4. Þú getur þetta!
Já þú getur þetta, farðu nú bara og gerðu þetta.