Þegar verið er að fara út í eitthvað sem maður hefur aldrei gert áður eins og að stofna fyrirtæki í fyrsta skipti þá er auðvelt að gera mistök. Sjálfur hef ég gert óhemju mikið af mistökum í þeim fyrirtækjum sem ég hef stofnað en sem betur fer hef ég lært af þessum mistökum og er orðin klárari í dag fyrir vikið. Til lengri tíma litið er það mikilvægur lærdómur sem fylgir þeim mistökum sem þú hefur gert og því skaltu aldrei skammast þín fyrir að viðurkenna mistök þín. En sama hversu mikið við lærum af þeim þá getur þó verið afskaplega erfitt að takast á við þau á meðan á þeim stendur. Ég hef því tekið sama hérna 10 algeng mistök sem ég hef sjálfur kynnst og sem ég hef kynnst hjá þeim frumkvöðlum sem ég hef verið að leiðbeina og aðstoða.
Mistök 1: Halda að þú verðir rík(ur) strax.
Þetta eru mjög algeng mistök þar sem einstaklingar halda að fyrirtæki þeirra muni skila þeim hagnaði strax. Ég veit um engin dæmu um það að einhver verði ríkur við það eitt að stofna fyrirtæki. Staðreyndin er sú að það að fara út í fyrirtækjarekstur þýðir yfirleitt mikla vinnu og lítil sem engin laun fyrstu árin. Ekki búast við að fara græða milljónir bara útaf því þú stofnar fyrirtæki eða útaf því þú ert með góða hugmynd. Almennt sé má áætla að það taki 2-3 ár af mikilli og erfiðri vinnu áður en fyrirtækið fer að komast á þann stað að það fari að skila hagnaði fyrir stofnendann.
Mistök 2: Setja of mikinn pening í fyrirtækið.
Þetta kann að hljóma nokkuð undarlega fyrir mörg ykkar þar sem það er erfitt að ímynda sér að of miklir peningar í fyrirtæki séu slæmur hlutur. Þetta er líklega ykkar eigin sparnaður sem þið eruð að setja í fyrirtækið og ef þið hafið litla reynslu af því að reka svona fyrirtæki þá er mjög auðvelta að brenna upp peninga í ekki neitt. Þegar þið eruð að stofna fyrirtæki þurfið þið að reyna sanna bæði viðskiptahugmyndina og tekjumódelið áður en þið farið að setja peningar ykkar og annara í það að fjármagna það. Þetta er ekki auðvelt að gera en ef þið getið með litlum pening sannað að það séu viðskiptavinir sem vilja kaupa vöruna ykkar þá getið þið með miklu meira öryggi sett inn meiri pening til að fylgja því svo eftir. Einnig er oft gott að vera með lítill fyrirtæki í upphafi því það er svo miklu auðveldara að hafa yfirsýn yfir öllu og breyta um stefnu ef eitthvað fer úrskeiðis.
Mistök 3: Ætla að gera allt.
Það er mikilvægt að vera með mjög vel skilgreinda þjónustu/vöru og vel skilgreindan markhóp. Ég hef lent í því oftar en ég get talið að heyra unga frumkvöðla og þá sérstaklega í hugbúnaðargeiranum tala um að varan þeirra ætli að sameina svo miklar upplýsingar og lausnir að það verði einhverskonar heildarlausn fyrir allt og alla. Góð vara að mínu mati leysir eitt vandamál og leysir það vel. Þegar þið ætlið að fara búa t.d. „til vefsíðu með öllum veitingastöðum í heiminum og byggja það ofan á samfélagsvef og bókunarkerfi“ þá veit ég að þið eruð á rangri leið. Það að búa til einfalda og skilvirka vöru er afskaplega erfiður og tímafrekur ferill, hvað þá ef þú ert með flókna hugmynd með endalaust mörgum lögum og snúningum. Hafðu þetta einfalt og hnitmiðað og þá er líklegra að hugmyndin nái langt.
Mistök 4: Halda að varan selji sig sjálf.
Þetta gerist ALDREI! Mér er alveg sama hversu frábær hönnður, forritari, verkfræðingur, skartgripassmiður eða glerblásturmaður þú ert, varan selur sig aldrei sjálf. Þú þarft alltaf að leggja mikla áherslu á sölu- og markaðsmál og koma vörunni til hugsanlegra kaupenda. Ef þú ert ekki góður sölumaður þá verðurðu bara að læra að selja. Þú ert stofnandi fyrirtækisins og þú verður að geta selt vöruna sjálfur því það getur engin gert það fyrir þig. Seinna meir þegar þú hefur náð árangri geturðu fengið aðra til að aðstoða við söluna en það er langt í það og þangað til verður þú bara að selja sama hvað. Fyrirtækið verður að fá pening inn til að geta lifað og það eina sem skilar því pening eru sölur.
Mistök 5: Ætla búa til fullkomna vöru.
Þegar við erum að vinna með eigin viðskiptahugmynd langar okkur að sjálfsögðu að búa til bestustu og flottustu vöru sem nokkurtímann hefur sést. Þetta er mjög skiljanlegt en á sama tíma er þetta ein helsta orsök fyrir því að hugmyndir deyji. Staðreyndin er sú að þú hefur bara X mikinn tíma til að koma vörunni þinni á markaðinn og þess vegna hefurðu því miður ekki þann lúxus að geta endalaust dúllað þér við hugmyndina. Ef þú ert með vöruhönnun komdu henni sem fyrst til framleiðenda og í sölu, ef þú ert með vefsíðu settu hana þá á netið þótt hún sé ekki alveg 100% fullkomin. Staðreyndin er sú að við verðum að setja á okkur tímamörk og vinna eftir þeim, ef við tökum of mikinn tíma í svona hluti þá byrjum við bara að tapa pening, fáum engar tekjur inn og á endanum deyr bara varan áður en hún fær tækifæri til að koma inn í heiminn.
Mistök 6: Spyrja hvað reksturinn mun gera fyrir þig.
Ekki hefja rekstur bara útaf því að þið haldið að þið getið grætt á vörunni. Hugsið frekar hvaða vandamál varan mun leysa og hvernig hún mun nýtast viðskiptavinum ykkar. Ef þið eruð með vöru eða þjónustu sem virkilega nýtist viðskiptavinum ykkar og skapar virði fyrir þá þá mun það einnig skapa tekjur og hagnað fyrir ykkur. Þannig þið græðið meira á því að hugsa um þarfir viðskiptavinar en ykkar eigin.
Mistök 7: Velja ranga meðeigendur.
Það að fara einn út í rekstur getur verið rosalega erfitt þar sem öll ábyrgðin, allt stressið og allur kvíðin hvílir á þínum öxlum. Það er ekki auðvelt og þess vegna kjósa margir að fara í rekstur með einhverjum öðrum til að minnka álagið. Veljið vel þá aðila sem þið vinnið með útaf því ef þið veljið ranga meðeigendur þá getur það verið verra en að fara í þetta einn. Einnig mæli ég alltaf með að hafa mjög vel skilgreint hvernig samstarfinu verður háttað og hvað skuli gera ef ósætti koma upp á. Þá er gott að setja upp hlutahafasamkomulag á milli eigenda.
Mistök 8: Leggja allt undir.
Það að hætta í vinnunni og fara vinna í fullri vinnu við fyrirtæki sitt er rosalega áhættusamt sérstaklega þar sem það er vitað að það tekur langan tíma fyrir fyrirtækið að byrja skila hagnaði og sparnaðurinn er oft fljótur að brenna upp. Þá getur maður staðið eftir með enga vinnu, engan sparnað og fyrirtæki sem gekk ekki upp. Fyrir flesta getur það verið betra að fara hægt í sakirnar og byrja bara í rekstri samhliða vinnu og starfa þannig þangað til að fyrirtækið er komið á það stig að þið getið farið að vinna í því í fullri vinnu án mikilrar áhættu.
Ég verð þó að viðurkenna að ég hef verið tvístígandi með hvort ég eigi að kalla þetta mistök þar sem ég hef sjálfur alloft lagt allt mitt undir í fyrirtækjarekstri mínum og mun halda áfram að gera það. Ég geri mér þó grein fyrir því að það sama á ekki endilega við um alla og fyrir marga þá er þetta afskaplega stórt skref sem getur haft gríðarlegar afleiðingar.
Mistök 9: Ísland er lítill markaður.
Þetta eru séríslensk mistök en Ísland er ROSALEGA LÍTLL markaður aðeins 300.000- manns. Þótt svo að hugmyndir gangi upp á öðrum mörkuðum með tugi milljóna aðila þá þýðir það ekki að þær geti gengið upp á litla Íslandi. Þannig hugsið virkilega hvort þið getið fengið nægar tekjur á þessum litla markhóp áður en þið farið að byggja upp heilt fyrirtæki í kringum það.
Mistök 10: Frestunarárátta.
Hættu að lesa þessa grein og farðu að framkvæma og vinna í þínum hugmyndum NÚNA!