Mér hefur fundist svolítið vanta vettvang þar sem þeir sem hafa áhuga á fyrirtækjarekstri geta komið saman og spjallað saman um allt það sem þeir eru að fara í gegnum. Ég var mikið búinn að velta fyrir mér hvað gæti verið besti valmöguleikinn til að afreka þetta, fyrst datt mér til hugar að setja upp smáauglýsingasvæði hérna á frumkvöðlar.is. Hélt að þar gæti fólk óskað eftir hinu og þessu, leitað eftir skrifstofum til að leigja, finna hugsanlega samstarfsaðila eða meðstofnendur en nei, það gekk ekki alveg upp, var ekki nógu interactive. Svo datt mér til hugar að setja upp forum eða spjallsvæði hér á vefsíðunni þar sem lesendur bloggsins gætu talað um allt það sem þeim dytti til hugar varðandi fyritækjarekstur en það hefði verið tímafrekt að setja það upp og ef það er eitthvað sem ég á lítið af þessa dagana þá er það tími. Á endanum datt mér þó til hugar afskaplega einföld lausn á þessu, ég bjó einfaldlega til facebook grúppu sem hét Íslenskir frumkvöðlar og þar geta allir þeir sem hafa áhuga komið og verið með í umræðunni. Þetta tók mig einungis 5 mínútur í uppsetningu og nú þegar er síðan orðin nokkuð lífleg.
Ég vil því bjóða alla þá sem hafa áhuga fyrirtækjarekstri og frumkvöðlastarfi velkomna í nýju grúppuna Íslenskir frumkvöðlar 🙂