Á sprotastiginu getur viðtal eða fréttabútur skilið á milli feigs og ófeigs. Ef tekst að fá rétta sýnileikann í fjölmiðlum er hægt að ná til nýrra viðskiptavina, samstarfsaðila og fjárfesta, byggja upp ímynd og orðspor.
Furðuoft virðast frumkvöðlar eiga í mesta basli með að koma sér og fyrirtækjum sínum á framfæri í fjölmiðlum, og missa af verðmætum tækifærum. Að komast að í blöðunum, í sjónvarpi, útvarpi eða hjá vefmiðlunum er samt ekki svo snúið, ef menn bera sig rétt að.
Hér eru nokkur atriði til að hafa í huga:
– Taktu upp símann: Ekki bíða eftir að fjölmiðlarnir finni þig. Hafðu samband við þann miðil sem þér hugnast best og sjáðu hvort skiptiborðið getur ekki komið þér í samband við vinsamlegan blaðamann eða ritstjóra.
– Veldu rétta miðilinn: Sjónrænt efni ætti síður að fara í útvarpsfréttirnar, og hljóðrænt efni á kannski ekki best heima í prentmiðli. Hvaða miðil notar svo fólkið sem þú vilt ná til? Mundu að ef þú færð mikinn sýnileika á einum stað gætu aðrir miðlar haft minni áhuga á þér (þú ert ekki lengur „skúpp“), svo vandaðu valið í fyrstu tilraun.
– Hafðu eitthvað áhugavert fram að færa: Þetta er kannski mikilvægasta reglan af öllum. Fjölmiðlar vilja segja sögur um nýja og spennandi hluti. Er varan þín að fara að valda straumhvörfum? Varð fyrirtækið til á skemmtilegan hátt? Á varan þín erindi inn í umræðu um atburði líðandi stundar? Þú verður að hafa einhverja beitu á önglinum svo fjölmiðlarnir bíti.
– Vandaðu tímasetninguna: Ekki vera of snemma eða of seint á ferðinni. Þú kemst varla að með dagsfyrirvara, og þú gleymist ef þú hefur samband með margra mánaða fyrirvara. Mundu líka að á sumum tímum ársins er auðveldra að komast að. Færri berjast um sviðsljósið þegar er gúrkutíð.